|
Blessuð sértu sveitin mín
|
11.11.2006 13:26:10 / stinaei
Hef ákveðið að taka í notkun vefinn www.123.is/sigurros. Þar er
komið fullt af myndum og aðeins farið að blogga.
»
01.11.2006 21:02:54 / stinaei
Það er svona lufsudagur hjá mér í dag, er svona drusló en veit samt
ekki almennilega hvað hrjáir mig. Vaknaði með miklar magakvalir í
morgun og treysti mér því ekki í vinnu. Er líka mjög kvefuð og
röddin brostin. Hef raunar orðið miklar efasemdir um að ég sé á
réttri hillu í lífinu svona upp á röddina að gera. Hef trú á því að
þetta sífellda kvef stafi annað hvort af ofnæmi eða lélegri
raddheilsu. En ég og Paco vorum sem sé ein heima í morgun. Hann var
ósköp góður greyið og svaf í ýmsum fyndnum stellingum í bælinu
sínu. Sjálf drap ég tímann við lestur og svefn og við að fylgjast
með tölvupóstsendingum systra minna vegna helgarinnar framundan.
Það lítur allt vel út og reiknað með brottför héðan um tvöleytið.
SIgga og Ásta koma hingað annað kvöld og Ásta ætlar að kíkja út í
skóla í heimsókn. Ég kenni til 11 á föstudögum svo við höfum tíma
til að borða e-ð. huggulegt í hádeginu áður en við brunum og hittum
Söndru í Brú. Þetta verður aldeilis fín afslöppun og má búast við
hlátri og almennri kátínu. Svo getur verið að tengdamamma komi á
sunnudaginn það væri nú aldeilis notalegt. Það er svona heldur að
róast hjá mér og svo eiga strákarnir einn frídag í næstu viku.
Foreldraviðtöl hjá mér á fimmtudaginn. Næstu helgi þyrftum við
endilega að hakka kjötið og selja spólur. En nú er ég farin að
blogga um hvað ég ætla að gera næstu daga og vikur, best að hætta
því svo ég hafi eitthvað að blogga um næstu dagana. Er að leggja
drög að 123 síðu svo það má búast við að ég kveðji þessa síðu á
næstunni.
»
31.10.2006 18:02:24 / stinaei
Það var aldeilis skemmtilegur dagur í Brautargengi í dag,
fyrirlestur um verkefnastjórnun og hagnýt verkefnavinna.
Fyrirlesarinn var Sigurður Steingrímsson frá Laufhóli í Skagafirði
og er hann afar hress og skemmtilegur sem vænta mátti.
Annars afrekaði ég það helst í dag að leggja fyrir
stærðfræðipróf fyrir nemendur mína og kenna sitthvað fleira. Einar
fór í afmæli og er þar enn, Símon með Almari í tölvu og Paco með
Adda í hesthúsinu. Ég er að slæpast í tölvu (þó ekki væri nema til
að auka á vöðvabólguna!) og ætla að lufsast til að borga nokkra
reikninga. Á eftir fer ég á fyrirlestur um áhugaverðan
fornleifauppgröft hér í nágrenninu og tek fréttamyndir. Svo kannski
inn á milli elda ég afganga frá í gær af ljúffengum fiskrétti og
kíki í Moggann. Nóg að gera framundan eins og ævinlega og nú eru
bara þrír dagar í systrahelgina miklu.
Þrír hafa tekið prófið um mig og niðurstaðan er sú að tveir
vinir sem ég hef kynnst hér á Hólmavík hafa hærra skor en Jói sem
ég hef alið upp frá sex ára aldri. Vonandi þýðir það bara að ég
hafi breyst svona mikið síðan hann flutti að heiman fyrir tveimur
árum. 
»
31.10.2006 08:38:23 / stinaei
Það er ekki nóg með að það sé prófatörn í skólanum, heldur er ég
búin að semja próf um sjálfa mig:
Takið þátt og svarið nokkrum
persónulegum spurningum um mig...sá sem fær hæsta stigaskorið fær
vegleg verðlaun (Mat fyrir tvo og gistingu á Borgabraut
3).
Gangi ykkur vel!
»
29.10.2006 14:13:12 / stinaei
Jæja þá er prófkjörinu lokið og kjörsókn alveg ásættanleg hér,
eiginlega alveg eins og ég bjóst við. Ég tók vaktina þarna í
Félagsheimilinu í gær kl 12-14 og í morgun kl 10-12. Þess á milli
var ég að sinna gestum en mamma og pabbi voru hér um helgina. Pabbi
kom með nýju tölvuna sína og ég setti eitt og annað inn í hana,
s.s. skype, msn live (Einari fannst nú ekki duga minna fyrir afa
sinn) og office pakkann. Jóhanna frænka hringdi í okkur og það var
eins og hún sæti við hliðina á mér, alveg hreint og fínt hljóð,
þetta er alveg snilld. Prófaði líka að hringja á msn og það virkar
ekki síður. Á meðan við pabbi sátum við tölvuna prjónaði mamma
hestamunstrið á peysuna hans Adda og það er því allt útlit fyrir að
hann geti klæðst henni á vigslu reiðhallarinnar sem ég veit reyndar
ekki hvenær verður .)
Addi er í útkalli og mamma og pabbi nýfarin, með kjörkassann með
sér. Ætla að leggja mig pínu og lesa, er svona frekar slöpp
eitthvað og lúin ennþá. Samt búin að hafa það mjög gott, borða
góðan mat og spjalla. Við mamma kíktum líka í Ás og það er alltaf
eitthvað rosa flott þar. Keypti smá gjöf handa mömmu og pabba því
þau áttu 39 ára brúðkaupsafmæli í gær.
Paco á óskaplega bágt núna, er að væla um að komast út. Ætla með
hann í göngu á eftir. Símon er að fara í afmæli til Robba og Einar
er að leika við Gústaf.
»
26.10.2006 20:46:18 / stinaei
Brautargengiskynningin í dag gekk vel og ég var rosa ánægð með
athugasemdirnar sem ég fékk. Allar kynningarnar sem ég náði að
hlusta á (var að kenna) voru líka rosa flottar og þessar konur mega
vera stoltar af sínu. Ég geri mér grein fyrir að þetta er erfiðara
fyrir margar en mig sem stend og kenni alla daga.
Á morgun er von á mömmu og pabba og það verður aldeilis fínt að
fá þau. Strákarnir eru voða spenntir og ég ætla að hafa læri
og ýmsilegt góðgæti handa þeim.
Svo þarf ég nú eitthvað að aðstoða við prófkjörið hjá
samfylkingunni og hvet ykkur bara öll til að taka þátt.
Símon er að læra , hann er orðinn svo duglegur og fer líka vel
fram í lestrinum. Einar er að fara á fótboltamót og er mjög
spenntur. Allt í fína líka á Króknum og þau Jói og Heiða stóðu sig
rosa vel í prófunum og Louisa dafnar vel. Get ekki beðið eftir að
sjá hana um næstu helgi, ætla að koma við þegar ég fer á Akureyri.
Paco minn er voða góður, er reyndar að væla í augnablikinu því hann
hefur svo lítið farið út í dag.
Jæja læt þetta gott núna er ferlega andlaus eitthvað eftir
annasamar tvær vikur... Er búin að ná mér í ruslefni að lesa og
ætla í heita sturtu...
»
22.10.2006 16:16:40 / stinaei
Það fer að verða vikulegur viðburður (eða sjladnar) að ég bloggi
enda alltaf nóg að gera og þegar einni vinnutörn líkur tekur önnur
við. Nú eru samræmdu prófin hjá nemendum mínum í 7.bekk afstaðin og
einhvern veginn stressast maður alltaf upp fyrir þeirra hönd.
Ég er búin að vera á fullu alla helgina að gera verkefni og
kynningu í Brautargengi og á þriðjudaginn verður general prufa og
fyrirlestur sem féll niður fyrst vegna veikinda og síðan bilaði
fjarfundabúnaðurinn í fyrsta sinn þegar við ætluðum að sjá
fyrirlesturinn.
Held að þetta sé allt að verða klárt hjá mér, þarf líka að koma
út blaði í vikunni og leggja eitt próf fyrir 9.bekk. Addi ætlar að
renna í Brú á eftir og ef prófið verður tilbúið skrepp ég með
honum. Svo fer nú eitthvað að róast í vikulokin og um næstu helgi
ætla mamma og pabbi að koma.
Er líka farin að telja niður fyrir systrahelgina á Akureyri í
byrjun nóv og 95 ára afmælið hennar ömmu í byrjun des.
»
16.10.2006 17:58:08 / stinaei
Jæja þá er hundurinn Paco kominn heim, hann er nú voða indæll
greyið þó hann sé nú vælandi í augnablikinu. Er búin að labba með
hann (eða hann með mig) í gær og í dag. Fórum og sóttum hann til
Akureyrar seint á föstudaginn og komum heim um fimm leytið á
laugardaginn. Við Addi fórum á karókið og var það mikil skemmtun.
Keppendur voru flottir og einn þeirra átti sérlega flott
stuðningslið líka. Nenntum ekki á ballið á eftir en fórum hins
vegar á halðborðið á undan sem var alveg hreint dásamlegt.
»
10.10.2006 09:00:00 / stinaei
Já það má segja að það sé hundur í mannskapnum á Borgabraut 3,
enda vorum við að eignast hund sem er 1 og hálfs árs gamall
blendingur af labrador pointer. Hann kemur austan úr Mjóafirði og
Addi og strákarnir fara að sækja hann á Sauðárkrók á föstudaginn.
(föstudaginn 13. nánar tiltekið!)
Annars er það að frétta að móðir mín er 65 ára í dag- til
hamingju mamma og Anna systir varð 44 ára fyrir viku síðar, til
hamingju Anna mín - þú berð titilinn the oldest one vel- hlakka
rosalega til systrahelgarinnar á Akureyri!
Annars er allt svona við það sama. Ég fór á Ísafjörð á
miðvikudaginn og fékk far með þeim Bryndísi og Jóa (tengdapabba
hans Jóa) hjá Farskólanum á Sauðárkróki. Sat þar haustfund Kvasis
sem eru samtök símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni. Það var mjög
fróðlegt og skemmtilegt. Gaman að hitta fleiri í þessum geira (en
fyrir þá sem ekki vita þá er ég umboðsmaður Fræðslumiðstöðvar
Vestfjarða hér á Ströndum). Fyrri daginn var námskeið með Hróbjarti
Árnasyni um markaðssetningu og kennslufræði símenntunar og um leið
lærðum við á Mind manager forritið. Seinni daginn var svo fundur
þar sem hver miðstöð kom með sitt innlegg um áhugaverð verkefni.
Einnig var fjallað um fs netið gjaldskrá fyrir fjarfundabúnaði
o.fl.
»
03.10.2006 08:52:43 / stinaei
Já svei mér þá ef ég er ekki búin að láta það eftir köllunum
mínum að fá fjórða karlinn, eða öllu heldur hund, inn á heimilið.
Sá heitir Paco og er labrador-pointer, búsettur einhvers staðar
fyrir austan og ætlar eigandinn að hitta okkur á Akureyri einhverja
helgina og afhenda voffann. Hann er svartur og voða sætur, bræddi
satt að segja alla fjölskylduna með einni mynd!
Annars var ég alveg foráttudugleg (ýki kannski aðeins mér í hag)
um helgina. Þreif og gekk frá þvotti, með tilheyrandi tiltekt í
fataskápum drengjanna, og gerði voða fínt í eldhúsinu (svona á
yfirborðinu a.m.k.). Eftir þetta allt saman var kærkomið að
skella sérá karókí á Riis. Hulda kíkti til mín og við urðum svo
samferða og hittum Hildi og hennar samferðafólk niður frá.
Keppnin var mjög skemmtileg og stemmingin mikil í Bragganum. Vel
þess virði að kíkja og það setur eflaust svip sinn á úrslitakvöldið
að fjöllistamaðurinn Siggi Atla var kosinn áfram af salnum. Mikið
stóðu nú allir sig vel líka, frábært að svona margir séu til í að
taka þátt og allir mjög fínir bara. Eftir þetta fór ég líka á Riis
en Addi fór heim snemma. Strákarnir voru sofnaðir snemma, pössuðu
sig sjálfir til hálfellefu og það gekk vel, enda stutt að fara ef
gemsinn hringir!
Í gær svaf ég heldur betur út, vaknaði nokkrum sinnum um
morgunin en svo vissi ég ekki fyrr til en karlarnir mínir voru
allir farnir út og ég rankaði við mér kl hálftvö! Þá rétt
dröslaðist ég fram í sófa og horfði á afmæli sjónvarpsins og fór
svo að vinna heimavinnuna mína við Brautargengi og afgreiða nokkra
tölvupósta. Fattaði svo um kvöldið þegar ég ætlaði að slappa meira
af að ég var komin með smá hita sem skýrir kannski þennan gífurlega
svefn og slappleika.
En ég ákvað að vera stálhraust í morgun, búin að vera að kenna
frá 8 til hálfþrjú, með smá hádegishléi og eitthvað er röddin mín
orðin léleg, þolir ekki svona daga. Fór svo að skila af mér
samantekt um fjarnámsver og stússast í fjarfundabúnaðinum og
undirbúa morgundaginn. Símon situr hjá mér hér í stofunni minni og
er að klára að læra. Svo ætlum við kannski að kíkja aðeins í
Lækjartúnið.
»
26.09.2006 21:21:16 / stinaei
Jæja þá er búið að skíra litlu prinsessunar okkar, hún heitir
Louisa Lind. Allt tókst mjög vel, falleg athöfn í kirkjunni, litla
djásnið og foreldrarnir blómstra og veislan tókst vel. Held bara að
við Jónína tengdamamma Jóa gætum tekið þetta að okkur, með hjálp
góðra kvenna í kringum okkur. Louisa fékk fullt af gjöfum og allir
voru voða glaðir með yndælan dag. Nafnið er líka voða fallegt en
það kemur úr móðurætt Heiðu í Þýskalandi. Eins og séra Dalla sagði
þá er þetta drottningarnafn sem hæfir prinsessu.
Ekki var nú verra að pabbi og mamma og systur mínar gátu verið
með okkur í bústað í Varmahlíð sem var aldeilis fínn. Heitur
pottur, góð aðstaða og fallegt umhverfi.
Vorum komin seint á sunnudagskvöld, allir voða þreyttir og ég
fór heim og lagði mig um þrjúleytið og sofnaði svo með Símoni í
gærkvöldi. Notaði nóttina til að skipuleggja eitthvað gáfulegt, það
er svo margt að hugsa í kringum þetta brautargengisnámskeið. Fengum
framhald á markaðssetningarhlutanum í dag og það var mjög fróðlegt.
Fyrirlesarinn er greinilega mikill aðdáandi Gísla bróður og út og
suður þáttanna. Og talandi um fjölskylduna og fjölmiðla þá voru
Gísli og Rakel að elda í sex til sjö á skjá einum í gær og mamma
var í mogganum í gær, í rosa fínni grein um fæðingardeildina á
Akranesi.
Á morgun ætla ég að vera með kynningarfund í tilefni af viku
símenntunar. Ég ætla að fjalla um fjarfundabúnaðinn, stöðu mála
varðandi fjarfundabúnað, hlutverk mitt sem tengiliður við
Fræðslumiðstöð Vestfjarða og starfsemi þeirra, auk þess sem
Viktoría ætlar að tala um niðurstöður þarfagreiningar fyrir
fjarnámsver sem hún gerði í vor. Mér finnst þessi
fullorðinsfræðslumál alltaf meira og meira spennandi og ef ég dríf
mig einhvern tímann í framhaldsnám gæti ég hugsað mér að fókusa á
þau, alla vega svona í bland við upplýsingatæknina. Svo vona ég að
ég geti kíkt til Hildar vinkonu minnar en hún á afmæli á
morgun.
Fór aðeins til Huldu í gær og Hjálmar Orri er komið með
hlaupabólu greyið. Ferlegt að hanga heima greyið og svo hlýtur nú
að klæja undan þessum bólum öllum.
Skírnarmyndir eru komnar inn á barnalandið hennar Louisu Linda.
Það er tengill á það hér neðarlega á síðunni minni.
»
21.09.2006 09:07:56 / stinaei
Síðan ég reis úr rekkju hefur verið aldeilis nóg að gera.
Byrjaði að baka þarna seinnipart sunnudagsins (og náði að gera
"kattarþrif" á heimilinu með hjálp kallanna minna). Á mánudaginn
vorum við með útsölu á þessum þúsund vídeóspólum sem við vorum með
í kjallaranum. Seldum hátt í tvö hundruð og eigum um átta hundruð
eftir. Ætlum að reyna aftur í nóvember og þá kannski á laugardegi.
Svo má ekki gleyma að fjarfundabúnaðurinn var vígður og gekk það
vel. Á þriðjudaginn var brautargengi, athyglisverður fyrirlestur um
markaðsgreiningu en ég þarf að vera búin að gera eina slíka fyrir
næsta tíma.Í gær var ég að klára að koma út blaðinu og náði að
ljósrita það í gærkvöldi. Í dag eftir vinnu mun ég svo vinna í
fjarnámsversmálunum, þarf að koma samantekt um það frá mér fyrir
næsta hreppsnefndarfund. Ferðinni er svo heitið í Skagafjörðinn á
morgun, verðum í sumarbústað í Varmahlíð og svo er skírnin
litlunnar á sunnudaginn. Læt heyra í mér þegar nafnið er komið!
Draumaráðningar: Var að afgreiða í alla nótt á einhverri stórri
hestasýningu og allt var þar í tómu rugli! Kassarnir virkuðu ekki
og enginn vissi hvað átti að kosta. Ekki góður draumur þegar maður
er á námskeiði um stofnun og rekstur fyrirtækja 
»
14.09.2006 16:17:24 / stinaei
Nú eru allir í fjölskyldunni búnir að fá einhvern skammt af
þessu veikindatíðarfari sem geysar hér um slóðir. Lagðist sjálf á
mánudag með hálsbólgu og beinverki og fór svo allt of fljótt í
vinnu aftur sem þýðir að ég er ekki búin að ná mér enn. Addi lá svo
í gær og fyrradag í svipuðu og nú er Einar komin með slæma ælupest
og heldur engu niðri. Símon heima í fyrradag og í dag en virðist nú
ekkert verulega veikur, kvefaður samt og druslulegur þannig.
Á þriðjudaginn var kennsla á brautargengisnámskeiðinu sem ég er
á og var það bara mjög fínt, fyrirlestur um þjónustu. Er aðeins að
byrja að berja saman áætlunina sem við eigum að skila í
námskeiðslok en verður ekki mikið úr verki eftir vinnu þar sem ég
er úthaldslítil þessa dagana. Er líka að vinna í fjarnámsmálunum og
býst við að skila af mér einhverju áliti eða greinargerð fyrir
næsta hreppsnefndarfund og vona að allt geti farið á fullt í
framhaldi af því. Verið er að vinna í að tengja fjarfundabúnaðinn
og nú skilst mér að vanti einhvern herslumun sem verður bókstaflega
að vera komið í lag fyrir námskeið leikskólakvennanna á mánudaginn.
Nú er bara að krossa fingur með það allt saman. Búnaðurinn verður
upp í skóla og verða þessi tvö námskeið því þar.
Fór í gær (og reyndar fyrradag líka) að skoða nýju
gjafavöruverslunina hér í bæ og hún er rosa flott. Smart vörur og
margt til og líka á góðu verði. Sennilega þarf maður ekkert annað
fyrir þessi jólin.
Gat engan veginn vakað yfir Magna þótt ég sé nú alltaf að fíla
hann betur og betur en frétti að hann hefði vermt fjórða sætið,
hlýtur að teljast gott. Heiða okkar var víst í þessu til að byrja
með en datt út áður en þetta komst í sjónvarp. Nú er hún að byrja
með söngnámskeið fyrir krakka hér á Hólmavík. Strákarnir eru frekar
spenntir fyrir því og vonandi bara að þeir séu lagvissari en móðir
þeirra!
Um helgina verð ég heima-já það er frétt- í fyrsta sinn síðan
20.ágúst sem ég er heila helgi heima. Ætla því að gera margt og
mikið og hvíla mig vel á eftir. Þarf t.d. að:
- Baka fyrir skírnarveislu
- Þrífa allt húsið og laga til
- Slá garðinn hinnsta sinni í sumar
- Mála nokkra glugga
- Læra heima fyrir námskeiðið sem ég er á
- Vinna í verkefni sem ég ætla að skila af mér í lok næstu
viku
- Liggja í leti og gera e-ð. skemmtilegt með strákunum mínum
(Addi meðtalinn)
Hva, þetta eru nú létt verk og löðurmannleg, hefði viljað byrja
á einhverju meðan ég sit yfir litlum lasarusum en er sennilega bara
óttalegur lasarus sjálf svo ég slæ því á frest.
»
10.09.2006 22:36:29 / stinaei
Sennilega búin að ferðast um 1200 km um helgina sem er nánast
hringvegurinn. Fór í Fljótin að föstudagskvöld, með viðkomu á
Sauðárkróki og enn vildi sú stutta ekkert heilsa upp á ömmu og afa
á Hólmó heldur bara svaf! Vorum komin í Fljótin um tíu og þá var
farið beint að setja á tertur á Sólgörðum. Við Addi og strákarnir
gistum á Lambanes-Reykjum. Frekar skrítið að vera þarna í næsta
húsi við Skotahúsið sem við bjuggum í fyrir nærri tíu árum en voða
notalegt og strákarnir vildu helst kaupa þetta hús. Mig dreymdi
raunar að ég væri að kaupa það fyrir 2 millur en það er nú kannski
hámark bjartsýninnar. Ég sofnaði líka fljótt þarna við
gítaræfingarnar hans Einars. Einar er alveg á fullu að æfa sig núna
og stefnir á að fá rafmagnsgítar sem fyrst.
Á sunnudaginn fórum við yfir að Barði að heilsa upp á alla sem
þar voru og svo niður á Sólgarða að gera skyr- og ostatertur.
Afmælið hófst um þrjúleytið og kom mikið af ættingjum og vinum
tengdamömmu þangað og það var mjög ánægjulegt. Ég lagði svo af stað
í Borgarnes um hálfsexleytið og var komin þangað um níu. Gummi
sótti strákana og þeir fóru á Hvanneyri. Ég fékk súpu (sem mátti nú
alveg missa sín) og eftirrétt þegar ég kom þarna á Hótel Hamar og
sat fram að miðnætti og spjallaði með hinum konunum. Fórum svo
aðeins í pottinn og ég sofnaði vært eftir að hafa lesið aðeins og
slakað á í aldeilis ágætu hótelherberginu. Námskeiðið hófst svo kl
9 í morgun, að vísu með morgunmat og svo morgunkaffi kl 10 og
hádegismatur um tólf! Vorum svo búnar eftir það og þá brunaði ég í
Bónus og á Hvanneyri. Það var afmæli hjá Gumma Pé. Ella og Bjössi
og Bjössi Falk og Þórunn og strákarnir hennar voru þar. Svo komu
Gísli bró og hans lið og Sigga sys. Þetta var heljar veisla og
gómsætar veitingar eins og Ástu er von og vísa. Við lögðum af stað
heim um sjö og vorum komin upp úr níu. Neita því ekki að ég er lúin
núna en jafnframt á fullu að hugsa allar hugmyndirnar sem tengjast
þessu námskeiði. Það verður spennandi...
Var að lesa á netinu þetta með sauðfjárveikivarnargirðingarnar
og er yfir mig hneyksluð. Tek undir með Jóni Jóns, skyldi þetta
hafa áhrif á þensluna fyrir sunnan?
»
06.09.2006 11:41:29 / stinaei
Símon hélt loksins upp á átta ára afmælið i gær og gekk það vel.
Hátt í tuttugu hressir krakkar mættu og léku sér úti og inni og
hann var voða glaður með veisluna sína og pakkana. Það var mikill
hraðbakstur á mánudaginn, enda nennti maður ekkert að gera á
sunnudagskvöldið nema ganga frá eftir helgarferðina. Gerði svo
fullt af pizzum eftir hádegi í gær og held að allir hafi farið
saddir og sælir heim. Sjálf sofnaði ég með Símoni eftir að hann
hafði lesið fyrir mig og Einar spilað á gítarinn. Það gekk rosalega
vel, Símoni hefur fleygt fram í lestrinum núna í haust og
gítaráhuginn er að vakna að nýju hjá Einari sem stefnir á
rafmagnsgítar og rokklög!
Í dag vakanði ég venju fremur seint enda var ég andvaka tvo tíma
í nótt af þí ég sofnaði svo snemma. Ekki samt nógu andvaka til að
nenna fram og sjá hann Magna "okkar", kíki frekar á hann í kvöld.
Er núna að ljúka kennslu, gamli bekkurinn minn á kafi í
ritvinnsluverkefni og ég stalst í smá fingraleikfimi hér á
blogginu. Tek svo einn aukatíma eftir hádegi (heimanám) og stefni
svo á að fara á fullt í fjarnámsaðstöðu-undirbúning seinnipartinn í
dag eftir að viðveru líkur.
Um helgina er stefnan tekin norður (austur á ég víst að segja
eftir að ég flutti á Hólmavík) eina ferðina enn. Það verður gaman
að sjá hvað litla snúllan hefur stækkað á einni viku og sjá minnsta
frændann hans Addi, sem reyndist nokkuð stór, 15 merkur og 54 cm
held ég. Og svo Örvar Ingva sem ég hef ekki séð í rúman mánuð, sá
hlýtur að hafa stækkað, að verða þriggja mánaða. Tengdamamma ætlar
að öllum líkindum að halda upp á sextugsafmælið. Það verður gaman
að sjá allt fólkið og fagna afmælinu og ekki síður þeim frábæra
bata sem hún er að ná eftir aðgerðina. Ég þarf svo að bruna í
Borgarnes á Brautargengisnámskeiðið, skilst að það séu komnar tíu
Strandakonur sem er frábært. Þarna verða einnig konurnar frá Vík í
Mýrdal og Akureyri, aldrei að vita hvort það verði kunnugleg andlit
frá síðarnefnda staðnum.
En nú er ég farin að blogga fram í tímann sem þýðir greinilega
að ég hef ekkert að segja! Best að huga að hvaða tertur ég get gert
fyrir helgina...
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|